02.10.2010 20:09

Villibráðakvöld Ósmanns 2010.    

 

Skrifað af Indriði Ragnar Grétarsson.
Laugardagur, 02. Október 2010 20:09

Ákveðið hefur verið að halda villibráðakvöld Skotfélagsins Ósmanns

Laugardaginn 23 október á Kaffi krók.

Skráning er hafin og lýkur 16 október.

Vinsamlegast hafið samband við Indriða eða Jón Brynjar til að skrá ykkur.

Nægt pláss og hvetjum við félagsmenn til að fjölmenna og taka gesti með.

Búið var að senda tölvupóst á alla félaga með matseðil og verð á miða, ef einhver

hefur ekki fengið tölvupóstinn endilega hafið samband.

Indriði : [email protected] Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpósts þjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.

Jón Brynjar: [email protected] Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpósts þjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.

 

Fyrir hönd skemmtinefndar

Indriði

04.09.2010 18:49

Tilkynning frá félaginu    
Skrifað af Arnar Snær Gunnarsson
Laugardagur, 04. September 2010 18:57

Ákveðið hefur verið að hafa skotvöll félagins opinn í september á meðan tíðin helst jafn góð og verið hefur, Þeas á mánudögum frá kl 18-21 og svo á öðrum tímum í samkomulagi við vallarstjóra.

 

Minnum einnig félaga á fyrsta félagsfund ársins sem verður mánudaginn 6. sept kl 19:30, Hann verður haldinn í nýstækkuðu klúbbhúsi félagins á skotvellinum.

 

Þríþrautardagurinn.    
Skrifað af Indriði Ragnar Grétarsson.
Miðvikudagur, 01. September 2010 07:31

Þríþrautardagurinn verðu haldin Sunnudaginn 5 september kl 14.00 en ekki laugardaginn 4 sept

eins og áður var talað um.

Þá fær fólk að skjóta úr riffli, haglabyssu og boga á óhefðbundin skotmörk

og aðstæðum.

 

kl 17.00 verður svo kveikt upp í grilli fyrir þá sem vilja.

Fyrir hönd skemmtinefndar

Indriði

 

Skemmtidagur þríþrautin!    
Skrifað af Indriði Ragnar Grétarsson.
Þriðjudagur, 24. Ágúst 2010 20:02

Samkvæmt dagskrá skemmtinefndar þá var áætlað að halda næst komandi

laugardag 28 ágúst síðasta viðburðinn í röð skemmtidaga sem sagt þríþrautardag,

en þá er fær fólk að spreyta sig í því að skjóta með riflfi, haglabyssu og boga

á óhefðbundin skotmörk og á óhefðbundnum aðstæðum.

En vegna mikilla anna hjá skemmtinefndinni að þá var ákveðið að færa

þennan dag fram um 1 helgi sem sagt verði laugardaginn 4 september kl 14.00.

Svo ef að aðstæður leyfa þá verður kannski slegið upp grilli og fólk getur

komið með mat og grillað.

Fyrir hönd skemmtinefndar

Indriði

 

Byssa vs skot vs þrengingar vs ákoma og dýpt    
Skrifað af Indriði Ragnar Grétarsson.
Föstudagur, 13. Ágúst 2010 10:42

Í tilefni að það styttist í veiðitímabil og að það var í fréttum um daginn að 40% gæsa væri með högl í sér þá viljum við bjóða félagsmönnum að koma næsta Sunnudag 15 ágúst kl.14:00 með von um að veðrið verði sæmilegt og athuga hversu góð skotin eru sem það er að nota með því að sjá hvernig dreifingin er og hve langt þau ná að fara inn með því að skjóta í símaskrá eða eitthvað álíka.

Það væri frábært ef þið gætuð látið vita hvort þið munum koma eða ekki ,þá er hægt að gera ráð fyrir fjölda af spjöldum til að skoða dreifingu ofl.

s: 848 1429

Netfang: [email protected] Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpósts þjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.

Kv

Indriði

14.07.2010 19:43

Veiðirifflakvöld Ósmanns    
Skrifað af Indriði Ragnar Grétarsson.
Miðvikudagur, 14. Júlí 2010 19:43

Veiðirifflakvöld Ósmanns verður haldið fimmtudaginn 22 Júlí kl 19.30.

Formið verður með svipuðu sniði og í fyrra, en spurning um eitthvað óvænt, aldrei að vita.

Það verður gaman að sjá hvaða tilþrif standa uppúr í ár.

Þetta er öllum opið, þannig að þið sem eruð á ferðalagi, og eruð í Skagafirði og hafið lausan tíma, þá endilega kíkið við til að sjá, spjalla og ofl.

Heitt kaffi á könnunni.

Fyrir hönd skemmtinefndar.

Indriði

 

 

Herrifflakvöld    
Skrifað af Indriði Ragnar Grétarsson.
Mánudagur, 21. Júní 2010 22:13

Haldið verður Herrifflakvöld fimmtudaginn 24/6 kl 19,30.

Þetta verður með svipuðu sniði og í fyrra.

Endilega kíkið við í spjall, kaffi og svo auðvitað að skjóta á hins og þessi

skotmörk með herrifflunum ykkar.

Alli velkomnir

Fyrir hönd skemmtinefndar.

Indriði

 

Kynning á Vinci    
Skrifað af Arnar Snær Gunnarsson
Fimmtudagur, 03. Júní 2010 19:12

Kynningin hjá Veiðihúsinu Sakka verður á morgun föstudag, frá kl 19-21 á Skotsvæði Ósmanns,

Allir velkomnir.

 

Kynning verður á tæknilegum breytingum sem átt sér hafa stað frá fyrri gerðum Benelli og eftir að því lýkur geta menn skellt sér út á völl og skotið nokkrum skotum til að fá raunverulega tilfinningu fyrir byssunni.

 

Kynning    
Skrifað af Arnar Snær Gunnarsson
Miðvikudagur, 26. Maí 2010 22:34

Veiðihúsið Sakka og Skotfélagið Ósmann munu standa fyrir kynningu á nýju Benelli Vinci byssunni föstudaginn 4. júní, Kynningin mun byrja milli 19-20, Nánar auglýst síðar.

 

Kjartan Lorange mun kynna byssuna fyrir Veiðihúsið og eftir kynninguna verður gestum boðið út á skotsvæði Ósmanns til að prófa,

 

Félagsmenn hvattir til að mæta og allir aðrir velkomnir.

Hér er video sem að sýnir aðeins um byssuna fyrir þá sem að eru áhugasamir.

http://www.youtube.com/watch?v=K4KyM6a_qTA

Bankaupplýsingar

Nafn:

Skotfélagið Ósmann

Farsími:

Jón Pálma 858-9233 Erlingur 852-2506

Heimilisfang:

Háahlíð 12

Staðsetning:

550 Sauðárkrók

Kennitala:

500791-2099

Bankanúmer:

0310---26---001900
Flettingar í dag: 202
Gestir í dag: 37
Flettingar í gær: 655
Gestir í gær: 121
Samtals flettingar: 372976
Samtals gestir: 47816
Tölur uppfærðar: 27.4.2024 10:27:12